N1 hefur undirritað samning við Skýrr um prentun á öllu útsendu efni N1 á sviði breytilegrar prentunar, til dæmis reikninga og fylgiseðla að því er kemur fram í tilkynningu félagsins.
"Skýrr bauð N1 hagkvæma heildarlausn fyrir þessa prentþjónustu. Þjónustan er sérsniðin fyrir þarfir N1 og við getum fylgst náið með framvindu mála á hverjum tíma gegnum prentvef Skýrr.
Samhliða hefðbundinni prentþjónustu hyggjumst við ráðast í þróunarverkefni með Skýrr, en það felst meðal annars í bættri þjónustu við viðskiptavini N1 hvað snertir rafræna staðfestingu pantana. Geta Skýrr til að fást við flókin tækniverkefni sem þessi er lykilatriði í farsælu samstarfi fyrirtækjanna," segir Friðrik Kristjánsson, deildarstjóri fjárreiða hjá fjármálasviði N1 í tilkynningu.
"N1 er kröfuharður viðskiptavinur með mikinn metnað á sviði upplýsingatækni. Það er alltaf skemmtileg áskorun að sinna þörfum framsækinna viðskiptavina. Skýrr hefur árum saman boðið atvinnulífinu breytilega prentun og pökkun á einum stað og öll starfsemin er gæða- og öryggisvottuð samkvæmt ISO 9001," segir Anna Huld Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri prentþjónustu Skýrr.
Viðskiptavinir Skýrr á sviði prentunar og pökkunar reikninga og breytilegrar prentunar eru mörg stærstu fyrirtæki landsins í fjármálageiranum, verslun, viðskiptum og þjónustu, ásamt íslenska ríkinu, ýmsum sveitarfélögum og opinberum stofnunum.
Skýrr býður margs konar gagna- og upplýsingaöflun og tengda prentun fyrir viðskiptavini. Þjónustan er öll á einum stað og fyllsta öryggis er gætt í dulkóðun gagna og aðgangsstýringu.
Söluráðgjafi Prentþjónustu Skýrr er Davíð Þór Kristjánsson.