N1 hefur tekið tekið yfir starfsemi Hexa í Kópavogi, sem er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði vinnufatnaðar. Hexa átti dótturfélag sem heitir Þjarkur og kaupir N1 einnig starfsemi þess. Með þessum félögum koma níu starfsmenn.

Að sögn Hermanns Guðmundssonar, forstjóra N1, hefur félagið ráðið 20 nýja starfsmenn frá áramótum og fært þannig inn til sín starfsemi sem áður var útvistuð.