Gengi hlutabréfa Icelandair Group hefur lækkað um 0,56% í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfanna stendur í 17,6 krónum á hlut sem er í hærri kantinum. Viðskipti með hlutabréf félagsins eru afar lítil eða upp á eina milljón króna, samvkæmt því sem fram kemur á Keldunni. Velta með hlutabréf Icelandair Group er iðulega mun meiri.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra lagði á Alþingi í gær fram frumvarp gegn verkfalli flugvirkja. Í kjölfarið var fyrirhuguð verkstöðvun þeirra sem átti að hefjast klukkan 6 í morgun afboðuð. Kjaraviðræður Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair Group halda svo áfram eftir helgi.