Sjö af níu stjórnarmönnum Samstöðu hafa ákveðið að segja sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn ásamt því að segja sig úr flokknum. Ástæðan er sögð eindreginn vilji Lilju Mósesdóttur að Samstaða bjóði ekki fram í næstu alþingiskosningum og að leggja skuli Samstöðu niður sem stjórnmálaflokk ásamt samstarfsörðuleikum sem komið hafa upp í kjölfarið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjömenningunum en þeir eru Birgir Örn Guðjónsson, formaður, Sigurbjörn Svavarsson, varaformaður, Pálmey Helga Gísladóttir, varaformaður, Guðrún Indriðadóttir, gjaldkeri, Vilhjálmur Bjarnason, Þollý Rósmundsdóttir og Axel Þór Kolbeinsson

„Það er mikið og vandasamt verk að bjóða kjósendum upp á nýjan valkost og það er því miður ekki líklegt að slíkt takist ef framboð til kosninga mætir andstöðu innan eigin raða,“ segir í tilkynningu frá hópnum.

„Innan Samstöðu eru margir einstaklingar sem þrá raunverulegar lausnir fyrir heimilin í landinu, einstaklingar sem eru tilbúnir að leggja sín lóð á vogaskálarnar í þeirri baráttu. Það er okkar von að sem fyrst muni koma fram nýr og skýr valkostur sem gefur heimilum landsins von. Von um breytingar. Þá von sem við vildum gefa með Samstöðu.“

Þá segir hópurinn að þessi aðgerð sé ekki uppgjöf heldur hvatning til þeirra sem viljum berjast áfram fyrir heimilin í landinu að fylkja liði, snúa bökum saman.