Gengi hlutabréfa Icelandair Group hækkaði um 2,74% í veltu upp á tæpa 1,2 milljarða króna í Kauphöllinni í dag. Þetta er bæði mesta gengishækkun dagsins og mesta veltan með hlutabréf á markaðnum. Gengi bréfa flugrekstrarfélagsins endaði í 9,75 krónum á hlut og hefur það ekki verið hærra í áraraðir.
Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Marel um 1,63% í 312 milljóna króna viðskiptum, bréf Eimskips fóru upp um 1,2% og Haga-samstæðunnar um 1,01%.
Þá hækkaði gengi bréfa Regins um 0,16% og Vodafone um 0,15%.
Gengi bréfa Bank Nordik í Færeyjum lækkaði um 2,61% á sama tíma.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,12% og endaði í 1.164,17 stigum.