Nær öllum tilboðum var tekið í skuldabréfaútboði Lánamála ríkisins í dag. Í flokkinn RIKB 15 0408 bárust 11 gild tilboð að fjárhæð 3,3 milljarðar króna að nafnverði. Tíu tilboðum var tekið fyrir 3,2 milljarða að nafnverði og var ávöxtunarkrafan 3,90%.

Í flokkinn RIKB 31 0124 bárust 27 tilboð fyrir 6,5 milljarða króna að nafnverði. Tuttugu og sex tilboðum var tekið fyrir 6,4 milljarða að nafnverði og ávöxtunarkrafan var 6,59%.