Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 14. nóvember til og með 20. nóvember 2014 var 155. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá. Þar af voru 110 samningar um eignir í fjölbýli, 32 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 6.462 milljónir króna og meðalupphæð á samning 41,7 milljónir króna. Er þetta önnur mesta heildarveltan á árinu en mest var hún 8.986 milljónir króna vikuna 3. janúar til 9. janúar.

Á sama tíma var 27 kaupsamningum þinglýst annars staðar á landinu. 11 á Suðurnesjum, 9 á Akureyri og 7 á Árborgarsvæðinu en heildarvelta allra þeirra samninga var 732 milljónir króna.