Afgangurinn af viðskiptajöfnuði við útlönd á 3. ársfjórðungi var 68 ma. kr. Þetta er næstmesti afgangur sem mælst hefur, en mesti afgangurinn mældist einnig á 3. ársfjórðungi árið 2016 að því er kemur fram í nýrri greiningu Hagfræðideildar Landsbankans.

Þá segir að frá því að núverandi uppgangur ferðaþjónustu hófst hefur afgangurinn á 3. ársfjórðungi hvers árs jafnan verið mestur. Þeir fimm fjórðungar þar sem afgangurinn var mestur frá árinu 1995, eins langt og samfelld gögn Seðlabankans yfir viðskiptajöfnuð ná aftur, eru 3. ársfjórðungur hvers árs síðustu 5 ár.

Jafnframt kemur fram að viðskiptajöfnuður við útlönd er jákvæður í 14. fjórðunginn í röð, en seinast mældist halli á 1. ársfjórðungi ársins 2014. Uppsafnaður afgangur á þessum 14 fjórðungum er um 480 ma. kr.

Það sé veruleg og jákvæð breyting frá því sem áður var, en allt fram til ársins 2012 var jákvæður viðskiptajöfnuður algjör undantekning. Áratugina fyrir 2012 hafi þjóðarbúið verið rekið með nær krónískum viðskiptahalla.

Greining Hagfræðideildar í heild sinni.