Um 189 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í ágúst síðastliðnum í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 36 þúsund fleiri en í ágúst á síðasta ári og fleiri en nokkru sinni fyrr í einum mánuði. Þetta kemur fram í nýrri talningu Ferðamálastofu.

Aukningin nemur 23,4% milli ára og hefur hún ekki mælst svo há milli ára í ágúst frá því Ferðamálastofa hóf talningar. Aukning hefur verið alla mánuði ársins á milli ára eða 34,5% í janúar, 34,4% í febrúar, 26,8% í mars, 20,9% í apríl, 36,4% í maí, 24,2% í júní og 25,0% í júlí.

Bandaríkjamenn fjölmennastir

72% ferðamanna í ágúst síðastliðnum voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 19,2% af heildarfjölda og næstfjölmennastir voru Þjóðverjar eða 12,3% af heild. Þar á eftir fylgdu síðan Frakkar (8,5%), Bretar (8,0%), Ítalir (4,8%), Spánverjar (4,8%), Kínverjar (4,3%), Kanadamenn (3,7%), Danir (3,2%) og Svíar (3,1%).

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Þjóðverjum, Bretum og Kínverjum mest milli ára í ágúst en 13.897 fleiri Bandaríkjamenn komu í ágúst í ár en í fyrra, 3.906 fleiri Þjóðverjar, 3.907 fleiri Bretar og 3.698 fleiri Kínverjar. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 70,6% aukningu ferðamanna í ágúst. Nokkrum þjóðum fækkaði hins vegar í ágúst í ár frá því í fyrra. Þannig fækkaði Rússum um 51,3% og Norðmönnum um 12,2%.

Fjöldinn fjórfaldast frá 2002

Ferðamönnum í ágúst hefur fjölgað jafnt og þétt frá því Ferðamálastofa hóf talningar á Keflavíkurflugvelli árið 2002. Heildarfjöldi ferðamanna í ágústmánuði hefur nærri fjórfaldast frá árinu 2002 og munar þá mestu um aukningu N-Ameríkana sem hafa meira en sjöfaldast og þeirra sem flokkast undir ,,annað“ sem hafa einnig sjöfaldast. Ferðamenn frá Mið- og S-Evrópu og Bretlandi hafa nærri þrefaldast og Norðurlandabúar ríflega tvöfaldast.

Það sem af er ári hafa 887.146 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 187.336 fleiri en á sama tíma í fyrra. Um er að ræða 26,8% aukningu milli ára.

Tæplega 40 þúsund Íslendingar fóru utan í ágúst síðastliðnum eða um þrjú þúsund fleiri en í ágúst árið 2014. Frá áramótum hafa 293.083 Íslendingar farið utan eða 31.805 fleiri en á sama tímabili árið 2014.