Nafnávöxtun Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga var 13,79% á árinu 2004 sem svarar til 9,36% hreinnar raunávöxtunar samanborið við 11,82% hreina raunávöxtun árið 2003. Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu 5 ár er 3,58% og síðustu 10 ár 5,12%. Heildareignir Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga í árslok 2004 námu 15,5 milljörðum króna og uxu um tæpa 2,6 ma.kr. á árinu eða um 20,0%.

Ávöxtun einstakra eignaflokka sjóðsins var misjöfn á árinu. Raunávöxtun innlendra skuldabréfa var 8,20% en raunávöxtun innlendra hlutabréfa var 55,42%. Raunávöxtun erlendra skuldabréfa var 4,98% og raunávöxtun erlendra hlutabréfa sjóðsins var á síðasta ári 0,88% að teknu tilliti til gjaldeyrisvarna. Gripið var til gengisvarna á síðasta ári til að draga úr neikvæðum áhrifum af styrkingu krónunnar á erlendar eignir sjóðsins sem skiluðu sjóðnum 175,4 m.kr

Verðbréfaeign sjóðsins í árslok 2004 skiptist þannig að 58,3% voru í innlendum skuldabréfum, 15,2% í innlendum hlutabréfum, 0,9% í erlendum skuldabréfum og 25,6% í erlendum hlutabréfum.

Byggt á frétt á heimasíðu Landssambands lífeyrissjóða.