Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Icelandair Technical Services (ITS) og Keilis á Vallarheiði.

Felur hann í sér að fyrirtækin munu í sameiningu hefja kennslu í flugvirkjun í september á næsta ári.

Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta .

Þar kemur fram að hér sé um merk tímamót í íslenskri flugsögu að ræða því síðustu áratugi hafa nemendur þurft að sækja nám í flugvirkjun til útlanda.

Þá kemur fram að kennt verður eftir almennum og viðurkenndum alþjóðlegum reglum ("EASA Part-147“) og munu nemendur að námi loknu öðlast full réttindi flugvirkja.

„Atvinnumöguleikar eru töluverðir víða um heim því nám þetta er alþjóðlegt,“ segir í frétt Víkurfrétta.

Þá kemur fram að unnið er að öflun fullra heimilda og lánshæfi hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Gert er ráð fyrir því að inntökuskilyrði verði þau að nemendur hafi lokið grunnnámi málmiðna eða sambærilegu námi.