Velta á fasteignamarkaði dróst saman um 25% í vikunni sem leið og hafði í vikunni á undan dregist saman um 31% milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Í vikunni sem leið var velta á fasteignmarkaði tæplega milljarður og hefur það ekki gerst síðan á milli jóla og nýárs árið 2004 eða í fjögur og hálft ár að velta sé undir milljarði. Í fyrri var veltan tæplega 1,3 milljarðar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 85% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið voru 33 og hafa samkvæmt upplýsingum FMR ekki verið færri á einni viku í rúmlega 6 ár. Í fyrri viku var 47 samningum þinglýst  en þinglýstir samningar eru að meðaltali 72 á viku frá áramótum.

Meðalvelta á hvern samning í vikunni voru tæpar 30 milljónir króna sem er örlítil aukning á hvern samning frá fyrri viku þegar meðalveltan var 27,5 milljónir á hvern samning. Meðaltal á hvern samning frá áramótum er 33 milljónir króna.