Gengisvísitalan er nú 158,4 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og stendur krónan því í stað frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun og nánast eins frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,4 stig en var í gær 158,5 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,1% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,4 krónum, Evran í 121,8 krónum og Sterlingspundið í 151,4 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,6 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.