Gengisvísitalan var 158,5 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því um 0,1% í dag en stendur í stað frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær. Krónan hreyfðist sáralítið í dag, ýmist veiktist eða styrktist um eða undir 0,1%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,5 stig en var í gær 158,5 stig.

Krónan hefur nú veikst um 0,2% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudögum.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82,7 krónum, Evran í 121,7 krónum og Sterlingspundið í 151,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 75,3 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,3 krónum.