Gengisvísitalan var 158,8 stig við lok markaða samkvæmt Markaðsvakt Mentis og veiktist krónan því örlítið, eða um 0,1% í dag en stendur hins vegar í stað frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð samkvæmt opinberu gengi Seðlabankans. Opinbert gengi var í morgun 158,8 stig líkt og í gær.

Krónan hefur veikst um 1,3% síðustu fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. þriðjudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 82 krónum, Evran í 122,1 krónu og Sterlingspundið í 155,7 krónum. Hafa skal í huga að Bandaríkjadalur hefur styrkst nokkuð gagnvar evrunni síðustu daga.

Þá stendur svissneskur franki í 75,3 krónum, japanskt jen í 0,75 krónum og danska krónan í 16,4 krónum.