Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið milli jóla og nýárs var aðeins 272 milljónir króna og dróst saman um 66% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins (áður Fasteignamati ríkisins).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni þar á undan um 806 milljónir króna en meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þó er meðalvelta síðustu þrjár vikur aðeins um 590 milljónir en lítil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði í desember.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 80% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Þá er vikan nú milli jóla og nýárs sú rólegasta í rúman áratug en áður hafði verið lítil velta á milli jóla og nýárs árið 2003 sem þó var helmingi meiri en nú.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 13 í vikunni sem leið en 34 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 20,9 milljónir króna og minnkar um rúmar þrjár milljónir milli vikna. Þetta er nokkuð undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning frá áramótum eru tæpar 32 milljón krónur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 87% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.