Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.277 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Atlantic Patroleum [ FO-ATLA ] hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er sáralítil eða aðeins um 140 milljónir. Mest öll veltan, eða tæplega 115 milljónir, eru með bréf í Glitni [ GLB ]. Þá er velta með bréf í Kaupþing [ KAUP ] um 20 milljónir en talsvert minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 0,3% frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 157,1 stig.