Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] stendur nánast í stað frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 í 4.297 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra en eins og sjá má er ekki mikil hreyfing á hlutabréfum.

Sáralítil velta er með hlutabréf eða rétt tæplega 80 milljónir. Þar af eru um 50 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og 20 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en mun minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst um 0,3% frá opnum gjaldeyrismarkaða og stendur gengisvísitalan í 154,8 stigum.