Nasdaq vísitalan í Bandaríkjunum féll um 3,3% í viðskiptum gærdagsins og féll Dow Jones vísitalan um 1,29% á sama tíma.

Mikil lækkun var á gengi bréfa í samfélagsmiðlinum LinkedIn en við lokun markaða höfðu þau fallið um 44%. Greiningarfyrirtækið Tableau Software missti næstum helminginn af markaðsvirði sínu á einum degi en gengi bréfa fyrirtækisins féllu um 49,4% í gær.

LinkedIn birti uppgjör eftir lokun markaða á fimmtudaginn en uppgjörið var undir væntingum. Sala á fysta ársfjórðungi ársins var 6% lægri en spáð hafði verið og tekjur á hvern hlut voru 27% lægri en spáð hafði verið.