Fyrirtæki í tæknigeiranum leiddu lækkanir vestanhafs sem og hráefnaframleiðendur. Gefnar hafa verið afkomuviðvaranir á fyrirtækjunum Corning og ConAgra.

Olíuverð hélt áfram að lækka í dag en það lækkaði sem nemur 0,25% og hafði það áhrif á mörkuðum. Olíutunnan kostaði 109,44 bandaríkjadali við lokun markaða.

Nasdaq vísitalan lækkaði í dag sem nemur 0,66% og Standard & Pours lækkaði um 0,19%. Dow Jones vísitalan hækkaði hins vegar um 0,15%.