Félag íslenskra náttúrufræðinga náðu saman við ríkið um nýjan kjarasamning í nótt að því er RÚV greinir frá . Kynna á samninginn fyrir félagsmönnum í dag og atkvæðagreiðsla um hann hefst eftir helgi. BHM félög náttúrufræðinga, ljósmæðra og starfsmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands vildu ekki skrifa undir tilboð ríkisins sem fjórtán önnur félög skrifuðu undir.

Samningar þeirra við ríkið hafa verið lausir frá því í september í fyrra þegar úrskurður gerðardóms rann út.