Í gær, 26. maí 2009, hélt skipaður umsjónarmaður með nauðasamningsumleitunum Stoða hf. (áður FL Group) fund með kröfuhöfum Stoða.

Á fundinum var kosið um nauðasamningsfrumvarp Stoða og var það samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Frumvarpið hlaut því samþykki kröfuhafa og verður það sent Héraðsdómi Reykjavíkur til staðfestingar.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.