Rafrænni íbúakosningu í Reykjanesbæ lauk klukkan 02:00 í nótt en kosið var um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík.

Alls kusu 934 í kosningunum, en kjörsókn var 8,71. Alls kusu 471 íbúar með breytingunum, eða 50,4% og 451 íbúi kaus á móti, eða 48,3%. Alls skiluðu 12 auðu eða 1,3%.

Tæplega 2.800 íbúar höfðu fyrr á árinu skrifað undir áskorun til bæjaryfirvalda í Reykjanesbæ þess efnis að efnt yrði til íbúakosningar um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík, en einungis þriðjungur þess fjölda tók þátt í kosningunni. Fram kemur í tilkynningu frá Reykjanesbæ að þessi dræma kjörsókn þyki óheppileg þar sem rafrænar kosningar eru tæki sem Reykjanesbær hyggst nota í ríkari mæli í framtíðinni til eflingar íbúalýðræði.