Dýri Kristjánsson, sjóðstjóri hjá Stefni, vann gullverðlaun í -74 kg flokki á Íslandsmótinu í bekkpressu nýlega. Sjóðsstjórinn sterki lyfti hvorki meira né minna en 130 kg í bekk en vegur sjálfur aðeins 70 kg.

Keppti hann fyrir Kraftlyftingafélag Seltjarnarness eins og Agnar Þór Guðmundsson, lögmaður hjá Fulltingi, sem lenti í þriðja sæti. Dýri er mikill íþróttakappi og hefur meðal annars leyst Magnús Scheving af sem íþróttaálfurinn.