Kauphöllin hefur samþykkt að NBI hf. (áður Nýi Landsbankinn) verði viðurkenndur ráðgjafi (þ.e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum.

Í tilkynningunni kemur fram að CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North.

Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla ákveðin skilyrði.  Þau helstu eru að CA þarf að:

  • vera lögaðili.
  • hafa nægilega marga starfsmenn.
  • tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri reynslu í  fjármálaþjónustu við fyrirtæki.
  • setja innri reglur um viðskipti með hlut í félögum sem þiggur þjónustu Certified Adviser.
  • hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga.