Afkoma Landsbankans (NBI) eftir skatta var neikvæð um 6,9 milljarða króna fyrir tímabilið 7. október – 31. desember 2008.

Afkoma bankans, sem stofnaður var á grunni Landsbanka Íslands hf. þann 7. Október 2008, liggur nú fyrir.

Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að tapið skýrist fyrst og fremst af tapi af markaðsskuldabréfum sem bankinn keypti af peningamarkaðssjóðum Landsvaka í október 2008, en það nam 38,2 milljörðum króna. Verðmæti skuldabréfanna er fært miðað við allar fyrirliggjandi upplýsingar um núverandi stöðu útgefenda bréfanna, en ekki eins og það var þann 31.12.2008.

Þá kemur fram að hreinn gengishagnaður af gjaldeyrisjöfnuði að teknu tilliti til virðisrýrnunar, var 32,6 milljarðar króna á tímabilinu og skýrist, að sögn bankans, annars vegar af gengisþróun krónunnar og hinsvegar af þróun gengis erlendra gjaldmiðla.

Rekstrarkostnaður af reglulegri starfsemi var 4,1 milljarður króna.  Hreinar þóknunartekjur námu 1,0 milljarði króna. Rekstrarkostnaður tengdur yfirtöku eigna og skulda frá (gamla) Landsbanka Íslands hf. nam 3,2 milljörðum króna.

„Þarna er bæði færður beinn kostnaður við yfirtökuna og kostnaður sem Landsbankinn samþykkti að taka á sig sem hluta af samningaverðinu,“ segir í tilkynningu bankans.

Heildareignir Landsbankans voru 1.037 milljarðar króna í árslok 2008 og hækkuðu um rúma 100 milljarða á tímabilinu. Þá hækkun má, að sögn bankans, að stærstum hluta rekja til veikingar krónunnar.

Útlán til viðskiptavina námu á sama tíma 705 milljörðum króna, þar af voru um 170 milljarðar til einstaklinga. Um fjórðungur útlána Landsbankans er til sjávarútvegsfyrirtækja.

Innlán viðskiptavina námu 431 milljörðum króna, þar af voru verðtryggð innlán um 93 milljarðar.  Verðtryggingarjöfnuður bankans er samt jákvæður um 54 milljarða.

Innlán fjármálafyrirtækja voru 132 milljarðar króna. Erlendar fjármálastofnanir eiga stærstan hluta þeirra.

„Í áætlunum bankans er gert ráð fyrir að þessi innlán færist yfir í aðrar fjárfestingar í síðasta lagi þegar gjaldeyrishöftum verður aflétt af flutningi fjármuna af þessi tagi,“ segir í tilkynningunni.

„Bankinn er vel búinn til að mæta þessu mögulega útflæði innlána.“

Eigið fé bankans var 143 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall (Tier 1) var 13,0% í árslok 2008. Þá var heildarfjöldi stöðugilda 1.182 í árslok 2008.