Viðskiptablaðið veit til þess að hér á landi er starfræktur a.m.k. einn neðanjarðar veðbanki. Stuðlar miðast við erlendan veðbanka og viðskiptavinir geta hringt eða sent smáskilaboð þar sem þeir tilgreina veðmál sín og upphæð.
Viðskiptavinir greiða ekki fyrir veðmálið fyrr en að því loknu og fá greiðslu í reiðufé ef það vinnst. Því hefur það komið fyrir að einstaklingar hafi safnað skuldum sem jafnvel nema hundruðum þúsunda króna. Athygli má vekja á því að um nokkurt skeið hefur þekktur leikmaður í Pepsi-deildinni starfað hjá veðbankanum.
Verra að vera með hausinn í sandinum
Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er opinn fyrir lögleiðingu veðmálastarfsemi þannig að erlendum veðbönkum sé leyft að starfa hér.
„Mér finnst ástæða til að skoða það, svo ég kveði nú ekki fastar að orði. Þetta er allt á fullri ferð á netinu, við erum að banna þetta en þetta fer fram engu að síður. Það á að skoða að heimila þetta og vera þá í betri aðstöðu til að hafa almennilegt eftirlit með þessu,“ segir Willum.
Hann viðurkennir að raunveruleg ástæða sé til að hafa áhyggjur af veðmálasvikum og slíku við núverandi fyrirkomulag.
„Það eru nú ágætis vangaveltur um að það sé þegar til staðar, íþróttafélögin hafa allavega látið í ljós áhyggjur af því. Við verðum auðvitað að hlusta á það og greina vandann og sjá hvort að skynsamleg löggjöf sé ekki bara svarið. Ég held að það eigi við um alla starfsemi af þessu tagi, það er verra að vera með hausinn í sandinum og trúa því að þetta sé ekki til bara af því við bönnum þetta.“