Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur óskað eftir því að ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara endurmeti hvort þörf sé á því að opna tollkvóta á lambahryggjum í ljósi nýrra upplýsinga sem nefndinni bárust frá framleiðendum. Nefndinni ber að skila niðurstöðu í þessari viku. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Frá því í vor hefur ráðgjafanefnd um inn- og útflutning landbúnaðarvara reglulega fengið tilkynningar um skort á lambahryggjum frá dreifingaraðilum. Hinn 22. júlí síðastliðinn fékk nefndin upplýsingar sem bentu til þess að það stefndi í skort hjá stórum hluta framleiðendanna sem ýmist voru búnir að tæma sínar birgðir, áttu lítið eftir eða gátu ekki annað dreifingu með góðum hætti.

Til að tryggja framboð á vörunni til neytenda lagði nefndin til við ráðherra að felld yrði niður innflutningsvernd á lambahryggjum tímabundið, eða frá 29. júlí fram til 30. ágúst 2019.