Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað Landspítalanum ráðgjafarnefnd til næstu fjögurra ára, í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. Formaður nefndarinnar er Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands.
Í nefndinni eru níu aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera forstjóra og framkvæmdastjórn „til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans . Skal nefndin m.a. fjalla um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir spítalans og langtímastefnu hans. Nefndin skal m.a. skipuð fulltrúum notenda þjónustu spítalans. Formaður skal í samráði við forstjóra boða til upplýsinga- og samráðsfunda eftir því sem þurfa þykir og eigi sjaldnar en tvisvar á ári“ líkt og segir í 20. gr. laga um heilbrigðisþjónustu þar sem kveðið er á um hlutverk ráðgjafarnefndarinnar.
Tengsl spítalans við þjóðfélagið efld og áhrif notenda þjónustunnar aukin
Heilbrigðisráðherra hefur sett nefndarmönnum í ráðgjafarnefnd Landspítala erindisbréf þar sem segir meðal annars að tilgangur með starfsemi nefndarinnar skuli vera að efla tengsl Landspítala við þjóðfélagið og möguleika notenda þjónustunnar til að hafa áhrif á starfsemi og þjónustu Landspítala.
Skipun nefndarinnar er sem hér segir:
Aðalmenn:
- Kristín Ingólfsdóttir, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, formaður
- Óskar Reykdalsson, lækningaforstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, varaformaður
- Jón Kristjánsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
- Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
- Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara
- Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
- Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB
- Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu
- Vilmundur Guðnason, prófessor og forstöðumaður Hjartaverndar