Markaðsstofan Icelandic Lamb hefur undanfarin misseri unnið að markaðssetningu á íslensku lambakjöti í Japan í samvinnu við kjötútflytjendur og japanska innflutningsfyrirtækið Global Vision.

Fyrirtækið flytur inn ýmsar sérvörur til Japans frá Evrópu og Norður Ameríku og selur til veitingastaða, svæðisbundinna dreifingaraðila og sérverslana. Nú þegar er íslenskt lambakjöt komið á matseðla um 100 veitingastaða í Japan og fæst auk þess í völdum verslunum.

Um 160 samstarfsstaðir á Íslandi

Helsta verkefni markaðsstofunnar Icelandic Lamb snýr að því að kynna íslenskt lambakjöt og aðrar sauðfjárafurðir fyrir erlendum ferðamönnum á Íslandi.

Þegar hefur verið komið á samstarfi við um 160 aðila í veitingarekstri, framleiðslu, hönnun og nýsköpun. Þar af eru um 120 íslenskir veitingastaðir í samstarfi um að setja lambakjöt í öndvegi. Að auki vinnur markaðsstofan að sérstökum útflutningsverkefnum.

Fyrsti formlegi samstarfs-veitingastaðurinn utan Íslands

Á dögunum var skrifað undir fyrsta formlega samstarfssamning Icelandic Lamb við veitingastað erlendis. Samningurinn er gerður við veitingastaðinn Yuki Daruma í Tókýó en nafnið þýðir snjókarl og eigandi staðarins er fyrrum frægur súmó-glímukappi.

Staðurinn er einn af þekkustu veitingarstöðum Tókýóborgar sem bjóða upp á mongólskt grill eða Ghengis Khan. Viðskiptavinir elda kjötið sjálfir við borðið og þykir íslenskt lambakjöt hafa sérstaka eiginleika sem nýtast vel á þessari tegund veitingastaða.

Staðurinn er sérstaklega þekktur fyrir að veggir hans eru þaktir eiginhandaráritunum frægra íþróttamanna og leikara.

Ekkert annað kjöt á mongólskum veitingastöðum

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra Íslands, setti upp fyrsta Icelandic Lamb skjöldinn á Yuki Daruma, en hann var á dögunum í opinberri heimsókn til Japan.

Fimmtán aðrir veitingastaðir hafa þegar óskað eftir því að gera sambærilegan samstarfssamning og skuldbinda sig um leið til þess að bjóða eingöngu upp á íslenskt lambakjöt og hafa það ávallt á matseðli.

Að auki verða fljótlega opnaðir þrír mongólskir grillstaðir til viðbótar sem munu sérhæfa sig í íslensku lambakjöti en þess má geta að ekkert annað kjöt verður á metseðli.

Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra neglir upp lambaskjöldinn
Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra neglir upp lambaskjöldinn
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt Svavari Halldórssyni markaðsstjóra Icelandic lamb.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt Svavari Halldórssyni markaðsstjóra Icelandic lamb.
© Aðsend mynd (AÐSEND)