Rekstrarniðurstaða Mosfellsbæjar var neikvæð um 205 milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt ársreikningi sem var kynntur á fundi bæjarstjórnar í dag. Rekstrarafgangur af samstæðunni að undanskildum fjármagnsgjöldum var 206 milljónir króna. Fjármagnsgjöld voru um 415 milljónir og er því er rekstrarniðurstaða neikvæð sem nemur 205 milljónum á árinu 2010.

Í tilkynningu um uppgjörið segir að rekstur sveitarfélagsins sé í samræmi við fjárhagsáætlun ársins. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 182 milljónir. Framlegð var 453 milljónir, sem nemur 13,2% af skatttekjum.

Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins nema samtals um 8,1 milljörðum en bókfært verðmæti eigna er 11,7 milljarðar og er eigið fé því 3,6 milljarðar.

„Bæjarstjórn ákvað í kjölfar efnahagshruns að milda áhrif efnahagsþrenginganna á íbúa sveitarfélagsins og dreifa þeim á þriggja ára tímabil. Lækkun skulda á árunum í aðdraganda hrunsins gera þetta jafnframt kleift. Ekki voru umtalsverðar hækkanir á gjaldskrám og útsvar var níu prósentustigum undir leyfilegu hámarki á árinu 2010. Þriggja ára áætlun gerir ráð fyrir að halli ársins 2010 verði unninn upp og í áætlun ársins 2011 er gert ráð fyrir hallalausum rekstri.

Rekstur stofnana Mosfellsbæjar er með miklum ágætum. Hagrætt var í rekstri til að mæta lægri tekjum sem og hækkun kostnaðar svo komast mætti hjá því að hækka gjaldskrár vegna þjónustu og leggja þannig meiri byrðar á fjölskyldur. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta stofnana er því ásættanleg fyrir fjármagnsliði.

Uppbyggingu í sveitarfélaginu var fram haldið á árinu 2010 þrátt fyrir krefjandi umhverfi. Nýr skóli var tekinn í notkun og gerðir voru samningar við ríkisvaldið um byggingu hjúkrunarheimilis og framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á árinu 2011. Fjármögnun þeirra verkefna er tryggð á hagstæðum kjörum og einnig hefur Mosfellsbær unnið markvisst að því að lækka fjármagnskostnað með endurfjármögnum lána á hagstæðari kjörum,“ segir í tilkynningu til Kauphallar.

Afkoma Mosfellsbæjar .