Tveir af þremur mönnum sem hafa verið kærðir fyrir innherjasvik í máli Icelandair neita sök, en málið var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sá þriðji var ekki viðstaddur þingfestinguna. Vísir greinir frá þessu.

Mennirnir þrír voru ákærðir fyrir innherjasvik eða hlutdeild í slíkum svikum.

Einn mannanna var með stöðu fruminnherja hjá Icelandair og hinir tveir eru grunaðir um að hafa nýtt sér upplýsingar frá fruminnherjanum til að hagnast á viðskiptum með hlutabréf í Icelandair.