Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann neitar því að hann hafi beitt sér við afgreiðslu mála Haga og 1998 ehf.

Tilkynning Gylfa í heild sinni:

Vegna frétta sem birst hafa í Viðskiptablaðinu og Morgunblaðinu í dag og í gær um afskipti undirritaðs af málefnum Haga og 1998 og afgreiðslu Arion banka á þeim skal tekið fram að þessar fréttir eru tilhæfulausar með öllu. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið beitti sér ekki fyrir því að afgreiðslu mála Haga og 1998 yrði frestað af hálfu Arion banka og hefur engin önnur afskipti haft af þessu máli.