Fulltrúi Svartahafsflota Rússa harðneitar því að Rússar hyggist ráðast á Úkraínumenn á Krímskaganum ef þeir gefist ekki upp fyrir klukkan þrjú í nótt. Þetta hefur rúsnesska Interfax fréttastofan eftir þessum ónafngreinda fulltrúa.  „Þetta er hrein della,“ hefur Interfax fréttastofan eftir fulltrúanum.

Virtar fréttastofur víðsvegar um heim, þar á meðal breska ríkisútvarpið, hafði eftir fulltrúa úr rússneska utanríkisráðuneytinu að til stæði að veita Úkraínumönnum frest til klukkan þrjú í nótt.