Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, liggur banaleguna. Þetta fullyrðir Makaziwe Mandela, dóttir hans, í samtali við fjölmiðla. Fréttavefur BBC vísar í SABC, ríkisútvarpið í Suður-Afríku, þar sem fram kemur að Mandela er heima hjá sér og nýtur heimahjúkrunar.

Hann var útskrifaður af spítala í september eftir þriggja mánaða sjúkrahússlegu. Mandela er virtur um allan heim fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnu. Hann sat í fangelsi í 27 ár, allt til ársins 1990, en eftir það var hann kosinn forseti Suður-Afríku. Hann var forseti í fimm ár.

Mandela er 95 ára gamall.