Nýlega komu fyrstu nemendurnir frá Bangladesh til Sjávarútvegskóla Sameinuðu Þjóðanna. Skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1998. Alls eru 23 nemendur í skólanum frá 14 löndum. Þar á meðal eru tveir nemar frá Bangadesh, en það er í fyrsta sinn sem nemendur koma þaðan.
Sjávarútvegur er mikilvæg atvinnugrein í Bangladesh þó mikið skorti enn á að þjóðin hafi náð að þróa og fullnýta þau tækifæri sem þar bjóðast. Skortur á verkkunnáttu og þekkingu á markaðsmálum er eitt af aðalvandamálunum auk skorts á nauðsynlegri fjárfestingu í greininni.