Nesvellir og Öryggismiðstöðin hafa undirritað samstarfssamningu til þriggja ára um öryggisþjónustu á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Samningurinn felur í sér náið samstarf um uppbyggingu öruggrar búsetu á Nesvöllum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öryggismiðstöðinni.

Þar kemur fram að meðal öryggislausna sem nú verða innleiddar er þjónustusími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir alla íbúa Nesvalla, vöktun öryggishnappa og innbrotskerfa og eftirlit með lóðum og byggingum á Nesvöllum.

„Þjónustusíminn er kærkomin viðbót við þjónustuframboð Nesvalla og mikilvægur hluti af öryggisneti svæðisins. Í hann geta íbúar hringt í og fengið aðstoð og leiðbeiningar um flesta hluti hvort sem um er að ræða áríðandi hluti eða hversdagsleg atriði. Íbúum Nesvalla verður jafnframt gert auðveldara að koma sér upp neyðarhnöppum og innbrotaviðvörunarkerfi frá Öryggismiðstöðinni.  Slíkur búnaður hefur á umliðnum árum margsannað gildi sitt.  Jafnframt munu öryggisverðir fara vaktferðir um svæðið og tryggja þannig enn frekar  öryggi íbúanna á sínu eigin heimili,“ segir í tilkynningunni.

„Markmið Nesvalla er að skapa íbúum sínum gott og öruggt heimili með góða þjónustu innan seilingar og er samningurinn við Öryggismiðstöðina mikilvægur liður í því,“ segir jafnframt.