Netbankinn var með hæstu innlánsvextina í fyrra, sjötta árið í röð, segir í fréttatilkynningu frá bankanum.

Gildir það bæði um verðtryggða og óverðtryggða innlánsreikninga.

Að auki var nafnávöxtun Lífeyrisreiknings og Framtíðarreiknings fyrir börn einnig hæst hjá Netbankanum.