Skilanefnd Spron hefur sent út tilkynningu þar sem bent er á að þeir sem vilja hafa áhuga á verðmætum í eigu Spron geta haft samband við skilanefndina og óskað eftir frekari upplýsingum. Þar sem Spron á engar fasteignir er hér fyrst og fremst um að ræða rekstrareiningar bankans, svo sem Netbankann, Frjálsa fjárfestingabankann og Spron Factoring.

Þessar einingar eru nú til sölu og í tilkynningu nefndarinnar er áhugasamir beðnir um að setja sig í samband við skilanefndina fyrir klukkan tólf á hádegi á morgun, þriðjudaginn 24. mars.