Myndstreymisþjónustan bandaríska Netflix hefur nú opnað fyrir aðgengi Íslendinga að vefsíðu sinni. Nú geta íslenskir viðskiptavinir skráð sig inn á síðuna notandi íslenska IP-tölu vandkvæðalaust. Viðskiptavinum býðst þá að skrá sig í þjónustuna og fá einn mánuð gjaldfrjálsan.

Árni Samúelsson formaður Sam-félagsins vildi ekki tjá sig um málið þegar blaðamaður Viðskiptablaðsins spurði hann um málið en Sam-félagið er á bak við samninga um aðgang að streymiþjónustunni hér á landi.

Verðlagning þjónustunnar er þrískipt - en hægt er að kaupa mismikil gæði í þjónustunni. Byrjunarverð þjónustunnar er 1.132 krónur á mánuði eða 8 evrur. Þá fær notandinn ótakmarkað aðgengi að öllu því myndefni sem Netflix hefur upp á að bjóða, en ekki í háskerpugæðum.

Næsta þrep að ofan er tveimur evrum dýrara, eða 1.415 krónur á mánuði. Innifalið eru háskerpugæðin og aukalegur skjár, en sleppt úr er svokallað Ultra-HD. Fyrir tvær evrur enn, eða 1.700 krónur, færðu aðgengi að tveimur skjám til viðbótar sem og Ultra-háskerpugæðanna.

Ísland er eitt þeirra 130 landa sem var að bætast í hóp þeirra sem hljóta nú aðgengi að þjónustunni, en tilkynnt var um aðgengisaukninguna á Consumer Electronics Show í Las Vegas í dag. Hlutabréfaverð Netflix hefur hækkað snarplega í kjölfar tilkynningarinnar, eða um heil tæp 6%.