Bandaríska streymiþjónustan Netflix hefur í hyggju að opna fyrir þjónustu sína á Íslandi á næstunni, en þetta kemur fram á vefsíðu fyrirtækisins . Hins vegar kemur ekki fram hvenær þjónustan mun opna en líklegt má telja að það verði fyrir lok ársins.

Greint var frá því fyrr á árinu að Samfilm hefði samið við Netflix um löglega dreifingu streymiþjónustunnar hér á landi. Sagði Árni Samúelsson, forstjóri Sam film, að opnað yrði fyrir þjónustuna seint á árinu.

Hingað til hefur þjónusta Netflix verið ólögleg hér á landi en hægt hefur verið að nálgast hana með krókaleiðum. Samkvæmt könnun sem MMR framkvæmdi fyrir Viðskiptablaðið fyrir ári síðan kom fram að einn af hverjum sex Íslendingum, eða 16,7%, eru með aðgang að Netflix á heimili sínu.  Um 5,5% aðspurðra sögðust ekki vera með þjónustuna, en að þeir ætli sér að kaupa áskrift að Netflix á næstu sex mánuðum.