Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra kynnti fyrir ríkisstjórn í morgun frumvarp um að netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar verði flutt til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Frumvarpinu er ætlað að tryggja aukið öryggi á þessu sviði og tryggja að forvarnir, viðbrögð og áherslur er varða netöryggi séu í samræmi við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar.

Innanríkisráðherra ákvað að gerð yrði sérstök úttekt á net- og upplýsingaöryggi fjarskipta í kjölfar þess alvarlega öryggisbrests sem varð vegna tölvuinnbrots hjá fjarskiptafyrirtækinu Vodafone aðfaranótt 30. nóvember. Páli Ásgrímssyni hdl., sem hefur sérhæft sig í samkeppnis- og fjarskiptarétti, var falið verkefnið. Tilgangur úttektarinnar var að greina heildstætt stöðu ofangreindra öryggismála, þar með talið ábyrgð fjarskiptafyrirtækja, ábyrgð og eftirlit opinberra stofnana, þá helst Póst- og fjarskiptastofnunar, Persónuverndar og ríkislögreglustjóra, réttarstöðu neytenda og lagarammann og koma með ábendingar um hvernig tryggja megi net- og upplýsingaöryggi sem best.

Niðurstaða úttektarinnar var sú að farsælast verði að færa netöryggissveitina, verkefni hennar og eftirlit til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, líkt og algengast er í nágrannalöndum okkar.