Opið samráð um áherslur í nýrri stefnu um upplýsingasamfélagið er hafið. Almenningur og hagsmunaaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri með þátttöku í netspjalli til 19. mars nk. Slóðin á spjallið er www.island.is/spjall .

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Forsætisráðuneytinu.

„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að móta nýja stefnu um upplýsingasamfélagið fyrir árin 2008-2011 sem endurspegli nýjar áherslur ríkisstjórnarinnar og byggi m.a. á stefnuyfirlýsingu hennar og pólitískum áherslum stjórnarflokkanna. Starfandi er stefnumótunarnefnd með 2 fulltrúum frá hvorum stjórnarflokki auk fulltrúa forsætisráðuneytis. Að auki eru starfandi samráðshópar sem vinna með nefndinni. Stefnumótunarnefnd er ætlað að skila af sér stefnu og framkvæmdaáætlun þar sem verkefnum er forgangsraðað og sett mælanleg markmið þar sem við á," segir í tilkynningunni