Nettó opnar nýja lágvöruverðsverslun við Lágmúla 9 í dag. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

„Við munum leita allra leiða til að vera eins umhverfisvæn og við mögulega getum,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa. Í nýju versluninni verður meðal annars LED-lýsing sem sparar 40% orku, orkusparandi loftræsting og lok á öllum frystum sem sparar um 40% orku.

„Þá leggjum við gríðarlega áherslu á að flokka allt sorp sem til fellur í versluninni – allt frá lífrænu yfir í pappa, plast og almennt sorp,“ segir Gunnar Egill. Allt frá árinu 2015 hefur Nettó stuðlað að minni sóun og flokkun úrgangs sem hefur meðal annars skilað sér í því að sorp frá verslununum hefur minnkað um meira en 100 tonn á ári. „Þá höfum við boðið viðskiptavinum okkar að kaupa vörur sem nálgast síðasta söludag með afslætti undir merkinu „Minni sóun“ sem viðskiptavinir okkar hafa tekið opnum örmum.“

Nýja Nettó verslunin í Lágmúla verður opin alla daga frá 10 – 21 og þar verður boðið upp á sama lága vöruverðið og í öðrum verslunum Nettó. Þar verður einnig afgreiðslustöð fyrir vefverslunarpantanir Nettó.

„Það hefur orðið algjör sprenging í netverslunninni hjá okkur frá því að hún opnaði enda sparar fólk sér gríðarlegan tíma með því að panta á netinu og sækja vörurnar í afgreiðslustöðvarnar eða fá þær sendar heim,“ segir Gunnar Egill. „Við stefnum enda að því að opna fleiri afgreiðslustöðvar við verslanir okkar á næstu misserum.“

Nýja verslunin er ein af þeim tólf verslunum sem Samkaup keyptu af Baskó á höfuðborgarsvæðinu og voru reknar undir merkjum Iceland og 10 – 11. Samkaup reka nú yfir 60 verslanir um allt land og spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til hverfisverslana í íbúðahverfum. Innan Samkaupa eru vörumerkin Nettó, Krambúðin, Kjörbúðin, Samkaup Strax, Seljakjör, Iceland og Háskólabúðin.

Eigendur Samkaupa eru þúsundir félagsmanna í Kaupfélagi Suðurnesja, Kaupfélagi Borgfirðinga og KEA ásamt nokkur hundruð beinna hluthafa.