Alþjóðlega tískuvörukeðjan NEW YORKER opnar í nóvember nýja og stórglæsilega verslun í Kringlunni. Verslunin verður á annarri hæð verslunarmiðstöðvarinnar, þar sem verslunin Zara var áður til húsa.

NEW YORKER hefur langt árabil verið leiðandi í tísku ungs fólks og hefur vaxið ár frá ári og starfa nú yfir 18.000 manns hjá fyrirtækinu í yfir 40 þjóðlöndum. Höfuðstöðvar þess eru í Braunschweig í Þýskalandi en verslanir eru nú yfir 1.000 talsins.

Verslunin í Kringlunni verður stórglæsileg og vöruúrval með besta móti, enda eru það einkunnarorð NEW YORKER að hvert augnablik sé einstakt og það sama eigi við um allan fatnað sem seldur sé í verslunum félagsins. Hver einstaklingur eigi að fá að vera hann sjálfur og finna sinn stíl aftur og aftur og þar skipti fötin máli.

Helstu vörumerki NEW YORKER eru AMISU, FB SISTER og CENSORED sem margir Íslendingar þekkja vel af ferðum sínum til Evrópu undanfarin ár en ATHLETICS, SMOG og FSBN hafa einnig sinn sess í versluninni í Kringlunni.

Sigurjón Örn Þórsson framkvæmdastjóri Kringlunnar segir að mjög ánægjulegt sé að erlend vörumerki kjósi að opna verslanir sínar í Kringlunni og með tilkomu NEW YORKER aukist enn úrval erlendra verslunarkeðja í húsinu sem styrki vöruframboðið viðskiptavinum Kringlunnar til handa.