Í nýjasta tölublaði Newsweek er fjallað ítarlega um þá hröðu þróun sem á sér staðar á sviði erfðafræði í dag. Fjallað er um árangur deCODE og hann settur í samhengi við það sem er að gerast á þessu sviði í heiminum.

Um er að ræða tvær greinar. Í annarri er talað við 10 áhrifamestu vísindamennirnir á þessu sviði og er Kári Stefánsson einn þeirra. Í hinni greininni er almenn umfjöllun um erfðafræði og þær stofnanir og aðila sem eru taldar vera í lykilhlutverki í þeirri framþróun sem er að eiga sér stað. Þar er ítarlega fjallað um Íslenska erfðagreiningu, hvernig fyrirtækið varð til, hverju það hefur áorkað og áhrif fyrirtækisins á þróunina á þessu sviði.