Bandaríska vikutímaritið Newsweek og fréttavefsíðan the Daily Beast ræða nú möguleika á sameiningu. Líkur á að samningar náist hafa aukist, að því er Wall Street Journal segir.

Nýir eigendur komu að rekstri Newsweek í ágúst síðastliðnum en það hefur verið rekið með tapi. Sömu sögu er að segja af the Daily Beast. Búist er við að rekstrarhalli heimasíðunnar verði um 10 milljónir dala á árinu. Um 4,6 milljónir manna heimsækja heimasíðuna í hverjum mánuði.