Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tók í dag ákvörðun um að loka sjö kvörtunarmálum sem varða íslensku neyðarlögin. Að mati stofnunarinnar brjóta lögin ekki gegn ákvæðum EES-samningsins. Ákvörðun þess efnis var birt rétt í þessu. Niðurstaðan er talin mikilvæg vegna úthlutunar úr þrotabúum gömlu bankanna og fyrir endurskipulagningu íslenska bankakerfisins að mati Per Sanderud, forseta ESA.

Neyðarlögin breyttu meðal annars röð kröfuhafa þannig að innstæður voru gerðar að forgangskröfum. Á grundvelli þeirra breytinga voru innstæður gömlu bankanna fluttar yfir í nýja og eignir til að mæta þeim.

Úr tilkynningu ESA:

„Við hrun íslensku bankanna í október 2008 samþykkti Alþingi lög nr. 125/2008 (neyðarlögin) sem miðuðu að því að tryggja virkni fjármálakerfisins og efla traust almennings á því. Lögin gerðu innstæður á bankareikningum að forgangskröfum við gjaldþrotaskipti banka. Innstæður nutu þar með forgangs gagnvart öðrum ótryggðum kröfum. Lögin veittu jafnframt Fjármálaeftirlitinu heimildir til að taka yfir eignir og skuldbindingar föllnu bankanna og ráðstafa þeim til nýju bankanna.

Fyrir bankahrunið höfðu nokkrir erlendir bankar lánað íslenskum bönkum háar fjárhæðir. Þessir erlendu bankar kvörtuðu undan því við ESA að þeir hefðu mátt þola ólögmæta mismunun vegna ákvæða neyðarlaganna og ákvarðana Fjármálaeftirlitsins sem áhrif hefðu á úthlutun eigna til kröfuhafa úr þrotabúum bankanna.

ESA hefur komist að þeirri niðurstöðu að innstæðueigendur eru í annari aðstöðu en almennir kröfuhafar og eiga tilkall til ríkari verndar við greiðsluþrot banka. Það er niðurstaða stofnunarinnar að hvorki neyðarlögin né ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins hafi falið í sér ólögmæta mismunun gagnvart almennum kröfuhöfum. Því hafi ekki verið brotið gegn ákvæðum 40. gr. EES-samningsins um frjálst flæði fjármagns.

Jafnframt telur stofnunin að hefði niðurstaðan orðið sú að þessar ráðstafanir hefðu verið taldar hamla frjálsu flæði fjármagns hefðu þær samt sem áður verið réttlætanlegar.

Þessi niðurstaða er mjög mikilvæg að því er varðar forsendur fyrir úthlutun eigna úr þrotabúum gömlu bankana og fyrir endurskipulagningu íslenska bankakerfisins ” segir Per Sanderud, forseti ESA.

Ákvörðunin um að loka málunum leysir ekki úr álitaefnum er varða tilskipun um innstæðutryggingar og mismunun á milli innstæðueigenda á Íslandi og innstæðueigenda sem áttu innstæður í útibúum íslensku bankanna í öðrum EES-ríkjum.“