Eftirspurn eftir vörum sem hafa að geyma hinar hollu omega-3 fitusýrur hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum enda líður varla sú vika að ekki séu birtar nýjar niðurstöður rannsókna um gagnsemi þeirra fyrir líkamlega og andlega heilsu fólks. Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta. Könnun sem hið þekkta markaðsrannsóknafyrirtæki Packaged Facts hefur gert leiðir í ljós að 9% viðskiptavina matvöruverslana í Bandaríkjunum kaupa einhverjar fæðutegundir sem innihalda omega-3 fitusýrur í dæmigerðri innkaupaferð. Þá taka 17% fullorðinna Bandaríkjamanna inn lýsisvörur af einhverju tagi samanborið við 8% fyrir fimm árum. Áætlað er að neytendur í heiminum verji 13 milljörðum bandaríkjadala eða jafnvirði 1.500 milljarða íslenskra króna til kaupa á vörum sem hafa að geyma omega-3 fitusýrur en þar er um að ræða matvæli (fiskur undanskilinn), drykkjarvörur, heilsu- og fegrunarvörur og gæludýrafóður. Því er spáð að eftirspurnin muni aukast á komandi árum.