Neysluútgjöld á heimili árin 2005–2007 hafa hækkað um 7,7% frá tímabilinu 2004–2006 og voru tæpar 396 þúsund krónur á mánuði, eða 165 þúsund krónur á mann.

Á sama tíma hefur meðalstærð heimilis minnkað úr 2,47 einstaklingum í 2,40 og hafa útgjöld á mann því hækkað um 10,7%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en gefin hafa verið út Hagtíðindi með niðurstöðum úr rannsókn á útgjöldum heimilanna árin 2005-2007.

Niðurstöður eru sundurliðaðar eftir búsetu, heimilisgerð, tekju- og útgjaldahópum. Heildarniðurstöður eru bornar saman við útgjaldarannsóknina 2004-2006.

Þar kemur einnig fram að ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni eru um 420 þúsund krónur á mánuði, tæpar 175 þúsund krónur á mann.

Ráðstöfunartekjur flestra hópa eru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin eru að meðaltali um 94% af ráðstöfunartekjum.

Í úrtaki voru 3.522 heimili, 1.603 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var svörun því rúm 45%.